saratheo.bloggar.is
ekki mikiš aš gerastSara
Jæja loksins læt ég heyra í mér, sorry er bara búin að vera ótrúlega löt þessa viku. Það er alltaf rosalega mikið að gera í skólanum, þarf að lesa rosalega mikið bæði fyrir Þroskasálfræði og líka fyrir fag sem heitir Leikskólinn og svo í hinum fögunum erum við að gera mikla verkefnavinnu bæði hópa og einstaklingsvinnu. Ætlaði að vera ótrúlega dugleg að læra þessa helgi en er ekki byrjuð ennþá:(Var að djamma á föstudagskvöld með saumó og það var rosalega gaman en ég varð svo full og var alveg dauð í gær (laugard.) og er búinn að ákveða núna að ég ætla ekki að djamma/drekka meira á þessu ári. Er farin að vera alltaf svo rosalega þunn næsta dag eftir djamm að mér finnst þetta ekkert sniðugt lengur, vil frekar eyða deginum í eitthvað skemmtilegt.
Guðrún Pebea var að byrja í söngskólanum í gær og fannst rosalega gaman, hún söng 2 lög í tímanum í gær og segir að kennarinn hafi sagt að þetta hefði verið flott hjá henni. Hún verður alltaf á laugardögum kl 11 og tíminn er 1. klst og eru 6 saman í hóp.
Guðrúnu gengur rosalega vel í skólanum en það er alltaf smá vesen á henni á morgnana því hún vill stundum alls ekki fara í skólann. Ég talaði um þetta við kennarann og hún segir að GP sé rosalega dugleg í skólanum fylgist vel með (en tali pínu mikið) en það sé ekkert vandamál. Ég held að þetta sé eitthvað vinkonu vesen að hún vilji ekki fara á morgnana því svo alltaf þegar hún er komin í skólann þá er hún alltaf bara glöð. Hún er auðvitað líka bara að spila á mömmu sína og sjá hvert hún kemst, (hún er sko svolítið mikið óþekk við mig stundum).
Jæja nú ætla ég að fara að byrja að læra aðeins:) Svo ætla ég að baka köku seinna í dag, ummm ef ég fengi að ráða þá yrði það súkkulaði. En ég ætla að leyfa Guðrúnu að velja og hún velur örugglega gulrótarköku.
Ég veit eiginlega ekki hvað er með mig og mitt ástarsamband. Mér finnst þetta eitthvað ekki vera að gera sig. Nú er Gerald búinn í fríi og byrjar að vinna á morgunn. Hann er búinn að fá sér fullt af tv stöðvum og fleira heima hjá sér þannig að nú verður hann miklu minna hér hjá okkur held ég. Þannig að ég ætla að einbeita mér að mínum skóla og Guðrúnu Pebeu og láta hann eiga sig og sjá hvað hann verður í miklu sambandi. En ég ætla ekki að láta hann spila með mig. Og hana nú.
Allavega læt þetta nægja í bili. Ég skal reyna að vera dugleg að skrifa núna reglulega svona helstu fréttir.
Bæjó í bili...........ekkert bros í þetta skiptið
smį žreytt;/Sara
jæja nú er ég farin að þrá helgarfrí........stuttur skóladagur á morgun og svo byrjar helgarfríið
JIBBÍ..........Ég er orðin eitthvað mjög þreytt eftir þessa viku;/ En er ekkert smá glöð að vera búinn með verkefnið í Ritun. Ég og Gunnhildur erum saman að gera verkefni sem við eigum að skila á morgun fyrir kl 23.55 og við kláruðum það í dag. Eða réttar sagt þá ætlaði Gunnsa að setja það upp í tölvu (hún er svo mikill snilli) svo skilum við því í fyrramálið

Guðrún Pebea er með einhverja gélgju stæla þessa dagana mjög svo óhlíðin. Hlíðir mér bara alls ekki, vill bara fá að ráða öllu en fær það ekki og þá byrja sko læti hér í Jötunsölum. Hún gargar eins og ég veit ekki hvað, veit eiginlega ekki allveg hvað ég á að gera við hana. Er farinn að nota 123 aðferðina og það gengur vel en samt ekki nógu vel

Við Gerald erum farin að vera saman aftur, en hann er samt ekki fluttur inn. En hann er að taka sumarfrís daga núna þannig að hann er mikið hjá okkur.
Hann er eitthvað að reyna að vera pínu rómantískur núna, hefur 2 sinnum komið með blóm handa mér núna með stuttu millibili og svo gaf hann mér eyrnalokka og hálsmen fyrir nokkrum dögum síðan
En ég veit alveg að þetta verður ekki lengi því hann er sko alls ekki rómantískur, sko langt frá því. En við erum allavega "Happy" saman. Veit ekki hvort GP er ánægð með þetta en á eftir að ræða þetta við hana.Jæja þetta er svona það helsta sem er að gerast í dag...........
Kveðjur til ykkar allra.
Bæjó
brjįlaš aš gera:)Sara
jæja allt gott að frétta, brjálað að gera í skólanum en er ótrúlega dugleg að læra
Finnst geðveikt skrítið að ég eigi eftir að vera í skóla næstu 3 árin og kanski lengur.
En þetta er bara búið að vera skemmtilegt hingað til og verður það vonandi. Þetta verður mikil vinna en hlítur að skila árangri seinna meir.
Ég er núna búinn að pakka næstum öllum flíspeysunum mínum niður, ég er ekki að vinna á leikskóla núna og þarf ekki á þeim að halda
Þið vitið að það er alltaf sagt að það sé svona eins og( Logo) fyrir starfsfólk leikskóla hvað allir þurfa að vera alltaf í flíspeysum:) er þetta ekki rétt??Ég er að fara í dag í neglur til hennar Dóru og svo á miðvikudag er ég að fara í klippingu til Viggu systir. Verð ég skvísa eða hvað
jæja læt þetta nægja í bili, kem fljótt aftur.
Bosandi kveðjur til allra

S...
prufu-bloggSara
þetta er svona smá prufublogg. Er að æfa mig fyrir skólann, þarf nefnilega að gera leiðarbók um öll fögin og það á að vera einhverskonar blogg sem bara kennararnir fá aðgang að. Notum eitthvað kerfi sem heitir elgg. En erum ekki byrjuð á þessu ennþá en ég ákvað að ath. þetta og prufa að gera blogg bara um mig og litlu prinsessuna mína. Kanski gefst ég upp mjög fljótlega, sjáum til.jæja þangað til næst..................
bæjó
og allir að muna að brosa, það gefur okkur svo mikið
smį kvešja til ykkar:)Sara
Halló hallóhéðan úr Jötunsölum er bara allt gott að frétta, er í skólanum á fullu það er gaman en rosalega mikið að læra, en það hlítur að skila einhverjum árangri síðar meir.
Ég fór í leikhúsið í gær að sjá Ást, Urðarhóll var í leikhúsinu og var rosalega gaman að sjá alla og held ég að allir hafi skemmt sér vel

Ég er ennþá að bíða eftir að fá íbúð í vesturbæ Kópavogs, veit ekkert hvenær það verður sem við mæðgur munum flytja en vona svo innilega að það verði núna í vetur. En á samt kanski ekkert sérstaklega von á því. Er örugglega að gera þau brjáluð þarna uppá húsnæðisskrifstofu því ég er alltaf að senda þeim póst til að vita svona hvar ég er í röðinni osf.
Ég er að byrja í afró mánudaginn 3. sept, hlakka geðveikt til hef ekkert verið í allt sumar bara búin að safna aukakílóum
Verð í afró mán og mið og svo ætla ég að vera dugleg að fara líka í ræktina. Ætla að ná öllum aukakílóunum af í þetta skiptið. Það skal ganga
Guðrún Pebea er ánægð í skólanum, vaknar oftast sjálf milli sjö og hálf átta og býr þá um rúmið sitt og kemur svo fram og þá gef ég henni morgunmat. Þetta gengur allt rosalega vel. Henni finnst hún vera orðin rosa stór núna þegar hún er byrjuð í skóla.
Fyrsta daginn sem ég sá að hún var að búa um rúmið sitt, sá hún hvað ég var glöð og sagði "mamma ég er nú orðin skólastelpa". Litla stelpan mín orðin skólastelpa

Hún byrjar í söngskólanum núna í byrjun sept. og hlakkar hana mikið til, ég held að hún eigi eftir að hafa mjög gaman að þessu og (læra mikið) vonandi. hehe
Ég er að fara í klippingu til Viggu syss á miðvikudaginn hlakka geðveikt til, vona að ég verði algjör skvís þegar hún er búinn að klippa mig:)
Ég ætla að reyna að vinna eitthvað í leikhúsinu með skólanum. En veit ekkert hvað mikið fer eftir hvað er mikið að gera í skólanum, vinn kanski bara svona einn og einn dag um helgi þegar vantar mikið fólk. Allavega eins og það er núna þá er bara svo mikið að gera í skólanum svo mikil heimavinna að ég sé það ekki alveg að ég geti farið að vinna strax. En þegar maður er kominn almennilega inn í allt saman þá verður þetta allt annað og get ég þá vonandi unnið eitthvað með til að fá smá aukapening.
Jæja verð að fara að hætta og halda áfram að læra, Guðrún varð nefnilega eftir hjá mömmu því ég ætlaði að fara að læra svo mikið.....hef enn ekki gert mjög mikið og GP fer að koma heim.
Ég er komin með á ískápinn minn lista yfir geðorðin tíu, á hverjum degi lít ég á listann og tileinka mér eitt geðorð á hverjum degi.
Geðorðið fyrir daginn í dag er: Hugsaðu jákvætt, það er léttara. Og ekki gleyma að brosa, að brosa mikið gefur manni mikla lífsorku.

Fer fljótlega að setja inn einhverjar myndir.
Bless þangað til næst

er aš byrja aš blogga:)Sara
Hæ hæ þið öll,frá mér er sko bara allt gott að frétta, ég er að byrja í skóla Khí, já já ég veit það hugsa margir núna (loksins komst hún inn) og það er líka alveg rétt.
LOKSINS KOMST ÉG INN

Er rosalega glöð og er bara rosalega spennt að takast á við skólann, þetta verður erfitt en bara gaman líka.
Svo ætla ég að reyna að fara að vera dugleg í ræktinni
Ég er búinn að vera að sveiflast í allt sumar, léttast og þyngjast til skiptis. En nú ætla ég að taka mig á er byrjuð að fá mér aftur alltaf herbalife shake í morgunmat og svo drekk ég teið og finn mun á mér strax bara eftir að vera búinn að gera þetta í nokkra daga. Svo kanski einhverntímann í sept ætla ég kanski að hitta aftur einkaþjálfann sem ég hitti í vor og láta hann mæla mig og gefa mér program. Hlakka bara til að takast á við veturinn. Held að þetta verði skemmtilegur vetur

Ég sakna nú Urðarhóls pínu, hugsa nú oft til þeirra Þóreyjar, Lilju og alla hinna vona bara að ástandið þar fari að batna. Ég ætla nú að vera dugleg að hitta skvísurnar þó svo að ég sé hætt að vinna þarna og vera líka dugleg að koma í heimsókn í skólann.
Guðrún Pebea er að verða 6 ára í vetur og er að byrja í skóla,hún er ótrúlega spennt. Ég ætla að fara með hana í söngskóla Maríu Bjarkar í haust, henni finnst svo gaman að syngja og á lítla karokie græju sem hún notar rosalega mikið. Svo fer hún líka í einhvern dans eftir áramót. Fullt að gerast hjá prinsessunni.
Það er komin nýr fjölskyldumeðlimur, Habba systir er búin að eignast lítinn strák, ótrúlega sætur. Guðrún Pebea segir að hann sé ótrúlega líkur honum Tedda (stóra bróður sínum). Hún er svo glöð að vera ekki lengur minnst í familiunni.
Ég þekki orðið svo marga sem eiga afmæli í ágúst og vil ég hér með óska öllum til hamingju með afmælið.
Jæja ég held ég fari nú að hætta og drífa mig að sofa því kl er að ganga 2, úfff verð þreytt á morgun.
Allir að muna að kvitta.......
bæjó